Svo segir Drottinn, frelsari þinn, Hinn heilagi í Ísrael: Ég, Drottinn Guð þinn, er sá sem kenni þér að gjöra það sem þér er gagnlegt, sem vísa þér þann veg, er þú skalt ganga (Jes. 48:17)
Öll börn sem koma á almenna samkomu á sunnudegi er
velkomið að taka þátt í barnastarfi kirkjunnar!
Börnin eru með foreldrum eða forráðamönnum sínum
í byrjun samkomunnar og fara síðan í barnastarfið
með leiðbeinendum sínum nokkru áður en kemur að
prédikun. Í boði fyrir börnin er fræðsla og uppbygging,
leikur og frjáls tími og alltaf er boðið upp á eitthvað snarl.
Verið endilega dugleg að mæta með börnin ykkar
og jafnvel barnabörnin og svo eru gestir alltaf velkomnir.
Með góðri mætingu verður starfið öflugra!
Frá september og fram í maí er starfræktur sunnudagaskóli
kl. 11:00 sem öllum börnum er velkomið að mæta í. Sjá nánar
um sunnudagaskólann í sér tengli á forsíðu heimasíðunnar.