| Alfa námskeið |
Alfa er 10 vikna námskeið, eitt kvöld í viku, þar sem fjallað er um kristna trú og boðskap Biblíunnar á einfaldan og lifandi máta. Hvert kvöld hefst á léttum málsverði kl. 19:00,
þá er fyrirlestur í 45 mínútur og loks umræður í hópum eftir stutt kaffihlé. Kvöldinu lýkur
kl. 22:00. Á miðju námskeiðinu er farin valkvæð helgarferð út úr bænum þar sem teknir eru fyrir nokkrir lestrar, haldin kvöldvaka og ýmislegt til gamans gert. Fyrir helgarferðina þarf að greiða sérstaklega en mál manna er að hún standi oftast upp úr hvað varðar reynslu og upplifun af námskeiðinu.
Umgjörð námskeiðsins er afslöppuð og þægileg og ekki eru lagðar kröfur á þátttakendur um viðhorf, skoðanir eða afstöðu. Þátttakendum gefst tækifæri til að spyrja allra þeirra spurninga sem þeim dettur í hug. Allar spurningar eiga rétt á sér, engin er of einföld eða of flókin. Alfa námskeiðið er opið fyrir alla og hentar t.d. þeim sem vilja kynna sér kristna trú, langar að skoða og rannsaka kristindóminn, leita svara við grundvallarspurningum lífsins, eru nýir í trúnni eða eru efasemdamenn.
Alfa námskeiðin hófust á Englandi árið 1982. Námskeiðin eru nú haldin í yfir 130 löndum
í öllum kristnum kirkjudeildum. Áætlað er að yfir a.m.k. 5 milljónir manna hafi kynnst kristinni trú á jákvæðan og uppbyggjandi hátt fyrir tilstilli námskeiðsins.
Hægt er að fá nánari upplýsingar um Alfa námskeið í síma 564-1124, í gegnum netfangið kefas@kefas.is eða á heimasíðu Alfa námskeiða á Íslandi, www.alfa.is
|
|