| Sunnudagaskólinn |
Nú fer sunnudagaskólanum senn að ljúka þessa önnina. Síðasti skólinn verður 25. apríl
kl. 11 og lokahátíðin verður svo viku seinna, sunnudaginn 2. maí kl. 11-12. Þá verður
margt til gamans gert og öll sunnudagaskólabörnin og fylgifiskar þeirra eru velkomin!
Hjónin Guðrún Hlín Bragadóttir, hjúkrunarfræðingur, og Narfi Ísak Geirsson,
grunnskólakennari, sjá um sunnudagaskólann sem er á efri hæð kirkjunnar.
Kennsluna byggja þau á hefðbundnum Biblíusögum, sunnudagaskólasöngvum og á
vönduðu efni frá Skálholtsútgáfunni. Í vetur verður margt til gamans gert, við
höldum áfram að kanna hvað er að finna í fjársjóðskistunni og fáum nýjan fastagest
í heimsókn til okkar! Það er hvolpurinn Hvati sem er bæði hress og góður hvutti
og hlakkar mikið til að hitta öll börnin! Öll börn fá gögn til skólans, fína pappatösku
mynda- og verkefnablöð og blýanta. Hver samverustund er tæplega klukkutími og
að skólanum loknum er börnunum boðið að lita mynd dagsins og síðan að fá létta hressingu, djús og ávexti eða kex.
Að sjálfsögðu eru öll börn, foreldrar, ömmur og afar meira en velkomin!
|
|