Svo segir Drottinn, frelsari þinn, Hinn heilagi í Ísrael: Ég, Drottinn Guð þinn, er sá sem kenni þér að gjöra það sem þér er gagnlegt, sem vísa þér þann veg, er þú skalt ganga (Jes. 48:17)
Kirkjan leigir út sal undir veislur, einkum fermingarveislur. Salurinn tekur u.þ.b. 80 manns og kostar kr. 25. þúsund og fylgir að minnsta kosti ein manneskja með sem tekur kr. 2.500 á tímann. Allt leirtau og önnur áhöld eru til staðar, kaffivélar og kælar fyrir matföng. Eldhúsið er einungis framreiðslueldhús en ekki framleiðslu svo ekki er hægt að matreiða á staðnum nema að litlu leyti. Öll meðferð áfengis er bönnuð.
Frekari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu kirkjunnar í síma 564-1124
eða með því að senda tölvupóst á kefas@kefas.is Athugið að skrifstofan er opin
á mánu- og þriðjudögum frá kl. 9-15 svo endilega reynið að beina fyrirspurnum
og erindum ykkar til hennar á þeim tíma.