| Sumarleyfi í júlí |
Í júlí verða engar samkomur né bænastundir í Kefas vegna sumarleyfa. Næsta samkoma verður 8. ágúst kl. 16:30 þar sem engin samkoma verður heldur um verslunarmannahelgina. Við hvetjum alla sem geta að skoða þau kristilegu mót eða hátíðir sem eru í boði um þá helgi og vonum að þið njótið sumarsins sem best! Góðar stundir! "Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er hreint, skjöldur er hann öllum þeim sem leita hælis hjá honum" Sálmur 18:31
 |
Bjorg á 01/07/2010 11:25 ·
|

| Saga Kirkjulækjarkots í hnotskurn á samkomu í dag |
Í dag kemur Erling Magnússon í heimsókn til okkar á samkomu kl. 16:30. Erling ætlar að segja okkur sögu Kirkjulækjarkots í Fljótshlíð þar sem kristileg starfsemi hefur verið starfrækt í 60 ár. Kotið hefur einnig verið samkomustaður hvítasunnumanna á Íslandi og frá 1950 hafa verið haldin þar mannmörg mót hverja Verslunarmannahelgi. Þó að mótið sé haldið af hvítasunnumönnum hefur það tíðkast í nokkurn tíma núna að fólk úr öllum kirkjudeildum tekur þátt í mótinu og hefur því oft verið lýst sem nokkurs konar ættarmóti kristinna manna úr frjálsu kirkjudeildunum. Í Kotinu hefur Drottinn snert mörg hjörtun og mörgum þykir vænt um hlíðina fögru. Við hvetjum alla sem unna staðnum að líta við og heyra söguna. Á samkomunni verður einnig lofgjörð, fyrirbænir og kaffi og samvera að henni lokinni.  |
Bjorg á 20/06/2010 13:31 ·
|

| Samkirkjuleg bænastund 17. júní |
Efnt verður til samkirkjulegrar bænastundar fyrir Íslandi í Hallgrímskirkju á 17. júní kl. 16. Flutt verður tónlist í umsjá Sigurðar Ingimarssonar frá kl. 15.45 og síðan borin fram níu bænarefni með röddum jafnmargra kristinna trúfélaga og hópa. Allir eru velkomnir, líka börnin, sem fá söng við sitt hæfi. Að bænastundinni stendur hópur fólks sem komið hefur vikulega saman í Friðrikskapellu til að biðja fyrir íslensku þjóðinni og ráðamönnum hennar undanfarin tvö ár. Allir eru velkomnir!  |
Bjorg á 16/06/2010 10:56 ·
|

| Útgáfutónleikar 16. júní |
Í kvöld, miðvikudaginn 16. júní, kl. 20:30 verður Íris Lind Verudóttir með útgáfutónleika í Krossinum, Hlíðarsmára 5-7 í Kópavogi. Hún er að gefa út geisladiskinn "Augun þín" sem inniheldur 14 lög, þar af sjö frumsamin og flest eftir Emil Hreiðar Björnsson, eiginmann Írisar. Öll lögin hafa kristilegan boðskap og mörg hver eru á íslensku. Það er ókeypis inn á tónleikana og hægt verður að kaupa geisladiskinn. Góða skemmtun! |
Bjorg á 16/06/2010 10:55 ·
|

| Málþing þjóðkirkjunnar um skuldir |
Mánudaginn 7. júní var haldið málþing í Neskirkju undir yfirskriftinni „Vorar skuldir – kirkjan og baráttan gegn óréttmætum skuldum“. Málþingið var samstarfsverkefni Biskupsstofu, Lúterska heimssambandsins og guðfræði- og trúarbragðadeildar HÍ. Aðal fyrirlesarar voru Martin Junge, tilvonandi framkvæmdastjóri Lúterska heimssambandins og Peter Prove, yfirmaður mannréttindasviðs sambandsins og kynntu þeir niðurstöður baráttu gegn óréttmætum skuldum. Viðbrögð við erindinu veittu m.a. Gylfi Magnússon, efnahags – og viðskiptaráðherra, dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor og hr. Karl Sigurbjörnsson biskup. Biskup hafði m.a. þetta að segja á ráðstefnunni: "Jafnvel þótt sagt sé að ríkisstjórnin hafi góðar fyrirætlanir í þessa vegu, þá er það ekki þetta sem fólk heyrir. Fólki sýnist að lítið sé verið að gera. Það er mikilvægt að við endurheimtum traustið í samfélaginu og vonina," segir hann. 
|
Bjorg á 11/06/2010 10:07
Lesa meira ·
25 Lesið ·
|
|
 |
| Breyttur samkomutími og garðvinnudagur |
Frá og með næsta sunnudegi verða samkomur í Kefas kl. 16:30 yfir sumartímann og bænastundir hefjast þá kl. 16:00. Þetta er gert til að drýgja helgarnar og fólk geti notað veðrið þá sjaldan sem við Íslendingar fáum að njóta sólar og sumars. Næsta laugardag, 29. maí, verður garðvinnudagur í Kefas frá kl. 10 til kl. 13 eða 14. Það þarf að hreinsa beðin, sópa stéttar og sinna nokkrum vorverkum. Við fáum okkur örugglega líka eitthvað gott í gogginn! Allir sem vettlingi geta valdið eru beðnir um að líta í stutta heimsókn en helst þó þeir sem eru með græna fingur! Síðan er tilvalið að fara heim, skola af sér rykið, skella sér á kjörstað, grilla góðan mat og horfa svo á Heru Björk og föruneyti fara á kostum í Evróvisjón!  |
Bjorg á 27/05/2010 09:00 ·
|

| Alþjóðlegur bænadagur á hvítasunnudag og grillveisla annan í hvítasunnu |
Á hvítasunnudegi, 23. maí, verður alþjóðlegur bænadagur á Íslandi og í 217 öðrum löndum. Stór bæna- og lofgjörðarsamkoma verður haldin kl. 20 í Digraneskirkju, Kópavogi og að sjálfsögðu eru allir velkomnir og hvattir til að mæta. Ritningarvers dagseins er tekið úr Postulasögunni, 1. kf. og versi 14: "Öll voru þau með einum huga stöðug í bæninni." Engin samkoma verður í Kefas á hvítasunnudegi en þess í stað verður grillveisla daginn eftir, annan í hvítasunnu, og hefst veislan kl. 16:30. Í boði verða pylsur og hamborgarar og mun kostnaði haldið í lágmarki. Á dagskrá verða nokkur létt atriði og allir eru velkomnir! |
Bjorg á 20/05/2010 10:03 ·
|

| Ferðasaga frá Kenýa á næstu samkomu, 16. maí |
Á næstu samkomu, sunnudaginn 16. maí kl. 14:00, mun Guðmundur H. Svavarsson segja okkur frá ferð sinni til Kenýa með ABC Barnhjálp. Ferðin var farin í mars og átti upphaflega að taka um þrjár vikur en heimför seinkaði töluvert vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Guðmundur mun segja okkur frá reynslu sinni og upplifun í orðum og myndum. Við hvetjum alla sem hafa áhuga á ABC Barnahjálp eða kristilegu hjálparstarfi að koma. Að samkomu lokinni verður kaffi, gott meðlæti og samvera auk þess sem verslunin verður opin. Allir að sjálfsögðu velkomnir! |
Bjorg á 14/05/2010 11:01 ·
|

| U2 messa í Haukaheimilinu á uppstigningardegi |
Annað kvöld verður áhugaverð messa í Haukaheimilinu, Hafnarfirði, kl. 20:00 þar sem prestar og kór Ástjarnarkirkju verða með svokallaða U2 messu en messan er samstarfsverkefni kirkjunnar og knattspyrnufélags Hauka. Messan er kennd við írsku hljómsveitina U2 sem þekkt er fyrir að berjast af mikilli hugsjón gegn fátækt og óréttlæti, sérstaklega í þriðja heiminum. Aðalsöngvari hennar, Bono, hefur verið óþreytandi að nýta frægð sína til að tala máli þeirra við ráðamenn og ásamt félögum sínum safnað gífurlegum fjárhæðum til að bæta kjör þeirra sem verst eru settir. Aðstæður íslenskrar þjóðar eru erfiðar um þessar mundir eins og öllum er kunnugt um, margir eru sorgbitnir og reiðir og fátækt eykst með hverjum deginum. Sumir hafa komist í þá erfiðu aðstöðu að þurfa að taka þau þungu og auðmýkjandi skref að leita til hjálparstofnanna í fyrsta sinn á ævinni með beiðni um matargjafir auk þess sem fólk efast um aðgerðir og réttsýni stjórnvalda. Af þessum sökum hefur verið blásið til þessarar messu þar sem einungis verða sungin U2 lög. Regína Ósk og Svenni Þór verða gestir tónleikanna og hljómsveit skipuð Hirti Howser, Agli Rafnssyni og Haraldi Þorsteinssyni sér um undirleik. Þessi frétt er unnin upp úr frétt af www.kirkjan.is  |
Bjorg á 12/05/2010 13:49 ·
|

| Fríkirkjan Kefas á facebook |
Nýlega kom Fríkirkjan Kefas sér fyrir á www.facebook.com eða snjáldurssíðunni eins og hún er stundum kölluð. Endilega bætið kirkjunni við sem vini ykkar og fáið upplýsingar og fréttir frá okkur. Eitt myndaalbúm er komið og er þar að finna skemmtilegar myndir úr lokafagnaði sunnudagaskólans sem var síðastliðinn 2. maí. Ef þið hafið bænarefni þá endilega sendið okkur skilaboð og bænarefninu verður komið á framfæri. Sjáumst á fésinu!  |
Bjorg á 10/05/2010 00:30 ·
|
|